10.12.2013 | 13:41
Mynd dagsins - Egyptar höfðu ágætan húmor
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2013 | 12:35
Uppruni
Forn egypska er næst elsta tungumál í heiminum á eftir súmersku. Það á ættir að rekja til ' Afroasiatic ' sem er móðir margra annara forna tungumála. Eitt er á hreinu að íslenskan/ norrænan er alls ekkert skylt þessari ætt. Hér sjáum við málatré:
Uppruni | Breytt s.d. kl. 12:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2013 | 11:40
Setning dagsins






Í dag | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.12.2013 | 11:26
Súrar staðreyndir
Ég þori að veðja, að þetta vissir þú ekki um híróglífurska letrið, nördinn þinn!!
Egyptar notuðu aldrei punkta, kommur eða spurningamerki við skrift sín. Einnig voru engin bil milli orða.
Það eru yfir 700 mismunandi híróglífur í fornri egypsku. Svo mörg eru þau vegna stærðar landsins og mismunandi þróunnar í tímanns önn, mállýskur höfðu líka eitthvað við málið að gera.
Þeir einu sem kunnu að skrifa og lesa voru mestmegnis prestar og sagnaritara.
Hvert myndtákn getur staðið fyrir eitt heilt orð eða einn bókstaf sér.
Þökk sé steintöflunnar 'Rosetta' sem fannst árið 1799, var loksins hægt að ráða fram úr tungumálinu (híróglífur) og skrásetja það. Innihaldið var þýtt yfir á tvö önnur forn tungumál, forn arabíska og neðst er forn gríska. Á steininum er fjallað um krýningu Ptolemy Epiphanes hinn fimmta konung egyptalands.
Staðreyndir | Breytt s.d. kl. 14:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2013 | 10:41
Saga forn egypskunnar
Tímabil fornegypskunnar skiptast í nokkur tímabil sem lifðu mislengi
Áregypsku (fyrir 2600 f.Kr f.Kr)
Gamalegypsku (2686 f.Kr - 2182 f.Kr)
Miðegypsku (2055 f.Kr - 1650 f.Kr)
Síðegypska (1300 f.kr - 700 f.Kr)
Demótíska (700f.Kr - 5. aldar e.Kr)
Coptic (1. öld e.Kr - 17. aldar e.Kr)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2013 | 16:55
Hagnýtar heimildir
http://en.wikipedia.org/wiki/Egyptian_language
http://is.wikipedia.org/wiki/Fornegypska
http://en.wikipedia.org/wiki/Writing_in_Ancient_Egypt
http://en.wikipedia.org/wiki/Eighteenth_Dynasty_of_Egypt#Amenhotep_III.2C_Akhenaten_and_the_Amarna_period
9.12.2013 | 16:47
Ný vefsíða opnuð
Hér í þessari fyrstu færslu ætlum við að fjalla um muninn á miðegypsku og íslensku. Á þessu tímabili í sögu Egyptalands var notast við leturkerfið híróglífur. Að sjá texta skrifaða með þessu kerfi er mjög flott og líkist meira listaverki heldur en einföldum texta. En ekki er það alltaf útlitið sem skiptir öllu máli. Það að letrið er svona flott segir manni að það er líklegast ekki allra að skrifa texta með kerfinu. Sérstaklega ef við lítum á þá staðreynd að mjög margir skrifa mjög illa með því kerfi sem við notum í dag. Hægt var að nota híróglífur á þessum tíma og við þetta tungumál Egypta en það væri afar erfitt og óhentugt að nota það kerfi í dag og þá sérstaklega til þess að skrifa íslensku. Það er mjög algengur misskilningur að táknin endurspegli eitthvað endilega orðin eða það er að segja fiskatákn þarf ekkert endilega að tákna fisk. Táknin eru aðallega fyrir hljóð og til þess að segja til um í hvaða orðflokki orðin tilheyra. Hægt var að skrifa híróglífur á marga mismunandi vegu eða, frá vinstri til hægri, frá hægri til vinstri og jafnvel lóðrétt.
Það gerir fólki svo sem ekki einfaldara fyrir og annað dæmi um það hvernig þetta kerfi væri því miður ekki hentugt í dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2013 | 16:41
Spjall
Hvernig ertu? Hvernig -þú -vera?
Hvað heitir þú? Þú-nafn?
Þú ert mjög
góð/ur, falleg/ur þessvegna elska ég þig.
Þú berð sama ljóma og sólin sjálf
Frasar | Breytt 10.12.2013 kl. 11:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)