Færsluflokkur: Bloggar
10.12.2013 | 13:41
Mynd dagsins - Egyptar höfðu ágætan húmor
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.12.2013 | 10:41
Saga forn egypskunnar
Tímabil fornegypskunnar skiptast í nokkur tímabil sem lifðu mislengi
Áregypsku (fyrir 2600 f.Kr f.Kr)
Gamalegypsku (2686 f.Kr - 2182 f.Kr)
Miðegypsku (2055 f.Kr - 1650 f.Kr)
Síðegypska (1300 f.kr - 700 f.Kr)
Demótíska (700f.Kr - 5. aldar e.Kr)
Coptic (1. öld e.Kr - 17. aldar e.Kr)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.12.2013 | 16:47
Ný vefsíða opnuð
Hér í þessari fyrstu færslu ætlum við að fjalla um muninn á miðegypsku og íslensku. Á þessu tímabili í sögu Egyptalands var notast við leturkerfið híróglífur. Að sjá texta skrifaða með þessu kerfi er mjög flott og líkist meira listaverki heldur en einföldum texta. En ekki er það alltaf útlitið sem skiptir öllu máli. Það að letrið er svona flott segir manni að það er líklegast ekki allra að skrifa texta með kerfinu. Sérstaklega ef við lítum á þá staðreynd að mjög margir skrifa mjög illa með því kerfi sem við notum í dag. Hægt var að nota híróglífur á þessum tíma og við þetta tungumál Egypta en það væri afar erfitt og óhentugt að nota það kerfi í dag og þá sérstaklega til þess að skrifa íslensku. Það er mjög algengur misskilningur að táknin endurspegli eitthvað endilega orðin eða það er að segja fiskatákn þarf ekkert endilega að tákna fisk. Táknin eru aðallega fyrir hljóð og til þess að segja til um í hvaða orðflokki orðin tilheyra. Hægt var að skrifa híróglífur á marga mismunandi vegu eða, frá vinstri til hægri, frá hægri til vinstri og jafnvel lóðrétt.
Það gerir fólki svo sem ekki einfaldara fyrir og annað dæmi um það hvernig þetta kerfi væri því miður ekki hentugt í dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)